Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
laugardagur, 28. febrúar 2015

Silfurstigin fyrir Reykjanesmótið eru komin á heimasíðuna.

Silfurstigin fyrir Reykjanesmótið í sveitakeppni eru komin á heimasíðuna.

laugardagur, 28. febrúar 2015

Butlertvímenningur að hefjast hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar

Þriggja kvölda butlertvímrnningur hefst í kvöld hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Spilamennska hefst að venju klukkan 19:00.

föstudagur, 27. febrúar 2015

Briddsfélag Selfoss

Aðalsveitakeppnin hélt áfram, þegar 3 kvöldum af 4 er lokið, eru Brynjólfur og Helgi efstir í NS og í AV eru þeir Höskuldur og Eyþór efstir. Mótinu líkur næstkomandi fimmtudag.

fimmtudagur, 26. febrúar 2015

Ólafur Steinason og Helgi Bogason tvímenningsmeistarar Kópavogs

Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld með sigri þeirra Helga Bogasonar og Ólafs Steinasonar. Öll úrslit spilin má sjá á heimasíðunni.

miðvikudagur, 25. febrúar 2015

Rangæingar -- Varmahlíðarvinir!

Þá er sveitakeppni félagsins lokið og ljóst að flestum, nema þá helst Moldnúpsmönnum, er einkar hlýtt til Varmahlíðar og þvældust lítið fyrir þeim á sigurbraut þeirra.

þriðjudagur, 24. febrúar 2015

Bridgefélag Reykjavíkur

Lokastaða í eins kvölds tvímenningi 24. febrúar 2015 hjá BR 1)  Þorgerður Jónsdóttir og Guðný Guðjónsdóttir  með 128 stig 2)  Hrólfur Hjaltason og Guðmundur Snorrason með 124 stig 3)  Snorri Karlsson og Karl Sigurhjartarson með 121 stig Aðalsveitakeppnin hefst síðan þriðjudaginn 3.

sunnudagur, 22. febrúar 2015

Garðsapótek vann svæðamót Reykjaness en GSE eru Reykjanesmeistarar

Reykjanesmótið í sveitakeppni fór fram nú um helgina í félagsheimili hestamanna að Mánagrund í námunda við Helguvík. Sjö sveitir unnu sér rétt til að spila í undanúrslitum Íslandsmótsins og vann sveit Garðsapóteks svæðamótið með 0,29 stiga mun en sveit GSE sem varð í öðru sæti er hinsvegar Reykjanesmeistari þar sem sigursveitin uppfyllti ekki skilyrði um að 3/5 í sveitinn væru skráðir í bridgefélög á svæðinu.

sunnudagur, 22. febrúar 2015

Sveit Birkis Jóns Jónssonar er Reykjavíkurmeistari í sveitakeppni 2015

Reykjavíkurmót í Sveitakeppni 2015 1. Birkir Jón Jónsson   194,70 2. Lögfræðistofa Íslands  191,34 3. Málning     183,77 Í sveit Birkis spiluðu,   Birkir Jón Jónsson, Jón Sigurbjörnsson, Björk Jónsdóttir, Anton Hraldsson, Júlíus Sigurjónsson, Hermann Friðriksson, og Daníel Már Sigurðsson.