Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 29. janúar 2015

Rangæingar -- "Stöðugt þessir garpar græða"

Sl. þriðjudagskvöld settust Rangæingar að spilum að vanda og nú til að leika 3ju umferð í sveitakeppni félagsins.  Varmahlíðarvinir fara mikinn og leggja hvern andstæðinginn á fætur öðrum að velli.

laugardagur, 24. janúar 2015

Bridgefélag Hafnarfjarðar - Aðaltvímenningur hafst klukkan 20:00

Vegna beinnar útsendigar frá 16 liða úrslitum á HM í handbolta verður mætingu í aðaltvímenningin frestað um klukkutíma og hefst klukkan 20:00, ef ekki kemur til framlengingar.

föstudagur, 23. janúar 2015

Briddsfélag Selfoss

Kristján Már og Gunnlaugur töku forystu í butler tvímenningi félagsins. Mótinu verður framhaldið fimmtudaginn 5. febrúar. Þar sem ekki spilað næsta fimmtudag vegna briddshátíðar.

fimmtudagur, 22. janúar 2015

Birkir Jón og Hrólfur unnu Janúar-Monradinn hjá BK

Janúar-Monrad Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld þegar þriðja og síðasta kvöldið var spilað. Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson náðu besta skori kvöldsins sem dugði þeim í þriðja sætið samanlagt en öruggir sigurvegarar urðu Birkir Jón Jónsson og Hrólfur Hjaltason/Kristján Blöndal.

miðvikudagur, 21. janúar 2015

Rangæingar -- Vinahót

Og sveiitakeppnin heldur áfram.  Í gærkvöldi var leikin önnur umferð.  Sýslumannsfrúin í Varmahlíð og aðrir Varmahlíðarvinir voru ekkert sérlega vinalegir við andstæðinga sína, Dalsdrengina, í gær.

þriðjudagur, 20. janúar 2015

Gunnlaugur og Kjartan unnu Cavendish tvímenning BR

Gunnlaugur og Kjartan unnu Cavendish tvímenning BR örugglega með 1935 stig Sjá nánar á heimasíðu BR

laugardagur, 17. janúar 2015

Bridgefélag Hafnarfjarðar - Lok aðalsveitakeppni og stuttur tvímenningur

Í kvöld, mánudagskvöld,  verður spilaður síðasti leikurinn í Aðalsveitakeppninni. Að honum loknum er spilaður stuttur tvímenningur þar sem þátttaka í tvímenningi Bridgehátíðar er i verðlaun.

föstudagur, 16. janúar 2015

Kjartan Ásmundsson og Stefán Jóhannsson eru Reykjavíkurmeistarar í tvímenningi 2015

1. Kjartan Ásmundsson - Stefán Jóhannsson  = 511 stig 2. Jón Baldursson - Sigurbjörn Haraldsson = 484 stig 3.