Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
mánudagur, 23. nóvember 2009

Bridgefélag Selfoss: Úrslit úr fyrsta kvöldi hraðsveitakeppninnar

Keppni hófst í hraðsveitakeppni félagsins 19. nóvember sl. Í mótinu taka sex sveitir þátt, og verður mótið spilað á þremur kvöldum. Efstir í mótinu eftir fyrsta kvöldið eru Ólafur, Gunnar Björn, Torfi og Sveinn með 64 impa í plús.

fimmtudagur, 19. nóvember 2009

Bridgefélag Rangæinga

Annað kvöld af fimm í Butler fór fram hjá Rangæingum núna 17.11.  Mjög góð þátttaka var og spilað á átta borðum.  Í þetta sinn voru það félagarnir Bjössi og Eiríkur sem stóðu uppi sem sigurvegarar kvöldsins með þó nokkrum yfirburðum 84 stig og 2,8 imp meðaltal pr.

miðvikudagur, 18. nóvember 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Sigtryggur og Gísli með 68,5% skor!!

Sigtryggur Sigurðsson og Gísli Steingrímsson unnu 25 para mót með glæsilegu skori, 68,5% skor. Þeir fengu að launum nýútgefnu bókina, Íslenskar bridge þrautir eftir Guðmund Pál.

miðvikudagur, 18. nóvember 2009

Akureyrarmót hafið

Síðastliðinn þriðjudag hófst fjögurra kvölda Akureyramót í tvímenningi. Til keppni voru mætt 16 pör sem er fín mæting. Spiluð voru 9 umferðir, 3 spil á milli para en spilað var eftir monrad fyrirkomulagi.

laugardagur, 31. október 2009

Briddsfélag Selfoss

Málarbutler Bridgefélags Selfoss hófst síðastliðið fimmtudagskvöld. Mótið er þriggjakvölda butlertvímenningur og er spiluð tvöföld umferð allir við alla.

föstudagur, 30. október 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Sturlaugur og Jón unnu 24 para tvímenning

Sturlaugur Eyjólfsson og Jón Jóhannsson unnu 24 para tvímenning með 62,8% skor. Þeir fengu sitthvora bridgebókina eftir Guðmund Pál í verðlaun. Garðar V.

miðvikudagur, 28. október 2009

Fyrsta kvöld í hraðsveitakeppni Byrs lokið

Fyrsta kvöld í hraðsveitakeppni Byrs lokið Þá er fyrsta kvöldi í hraðsveitakeppni byrs lokið. Þrjár efstu sveitir voru eftirfrandi: The Old Boys      577     Gylfi Pálsson       560 Sagaplast           552 Öll frekari úrslit og nöfn spilara má sjá hér.

miðvikudagur, 28. október 2009

Sveit Eyktar sigraði þriggja kvölda Swiss Monrad með yfriburðum

Efstu sveitir urðu 1 Eykt 230 2 Stefán Jóhannsson 204 3 Garðs Apótek 199 4 Kristján Blöndal 194 5 G.

þriðjudagur, 27. október 2009

Bridgefélag Hafnarfjarðar - Hraðsveitakeppni lokið

Eðvarð Hallgrímsson sigraði í tveggja kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Með honum í sveit spiluðu Leifur Aðalsteinsson, Sigurður Steingrímsson, Kristinn Kristinsson og Óskar Sigurðsson.

laugardagur, 24. október 2009

Bridgefélag Selfoss

Síðasta kvöld Suðurgarðsmótsins lauk síðastliðið fimmtudagskvöld. Það voru þeir félagar Kristján Már og Helgi Grétar sem enduðu sem öruggir sigurvegarar.

fimmtudagur, 22. október 2009

Bridgefélag Rangæinga

Upphitunartvímenningur - 20.10.09 Þriðji í upphitunartvímenning hjá Rangæingum var iðkaður nú rétt liðinn þriðjudag.  Það má segja að titilvörn meistara síðasta vetrar hafi hafist þar með látum.

fimmtudagur, 22. október 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Hulda og Halldór efst af 26 pörum!

Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 26 para tvímenning með glæsilegu skori, 67.9%. Þau fengu að verðlaunum bókaverðlaun frá Guðmundi Páli Arnarsyni.

miðvikudagur, 30. september 2009

Startmóti BA lokið

Þá er fyrsta móti af vetrardagskrá Bridgefélags Akureyrar lokið en þar lauk tveggja kvölda startmóti. Eftir fyrra kvöldið voru efstir þeir Pétur Guðjóns og Toni með 62,9% skor.

þriðjudagur, 29. september 2009

Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur

Stefán Jóhannsson og Sverrir Kristinsson fengu risaskor á öðru kvöldi af þremur hjá Bridgefélagi Reykjvíkur og eru nú í efsta sæti með 90 stig.    Sjá nánar hér.

þriðjudagur, 29. september 2009

A-Hansen mót Bridgefélags Hafnfj.

Guðbrandur Sigurbergsson og Friðþjófur Einarsson eru efstir eftir fyrsta kvöldið af þremur í A-Hansen tvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar. 20 pör taka þátt.

sunnudagur, 27. september 2009

Briddsfélag Selfoss og nágrennis

Næstkomandi fimmtudag hefst spilamennska hjá briddsfélagi Selfoss. Spilaður verður einskvöldstvímenningur. Spilað verður í Tryggvaskála og hefst spilamennska stundvíslega kl 19:30 Hægt er að skrá sig hér http://bokun.

fimmtudagur, 24. september 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Hafliði Baldursson og Unnar Atli Guðmundsson með 63.4%

Hafliði Baldursson og Unnar Atli Guðmundsson unnu 18 para tvímenning með góðu skori, 63.4%. Þeir fengu gjafabréf á Just Food to go að Laugarásvegi 1. Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson urðu í 2. sæti og Björn Arnarsson og Garðar Valur Jónsson nældu sér i 3. sæti.

þriðjudagur, 22. september 2009

Vetrarstarf B.A. hafið

Starf Bridgefélags Akureyrar í vetur er hafið með tveggja kvölda Starttvímenningi. Eftir harða baráttu eru Pétur og Anton með ágætis forystu en harða nagla á hælum sér.

þriðjudagur, 22. september 2009

Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur

Stefán Stefánsson og Vignir Hauksson eru efstir eftir fyrsta kvöld af þremur með 52 stig.  Jón Ingþórsson og Vilhjálmur Sigurðsson eru næstir með 36 stig.

mánudagur, 21. september 2009

Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason sigruðu í Hafnarfirði

23 pör spiluðu eins kvölds tvímenning í Hafnarfirði mánudaginn 21.september. Hlutskarpastir urðu Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason en fast á hæla þeirra komu Einar Sigurðsson og Högni Friðþjófsson sem eru loksins búnir að setja golfsettin inn í geymslu.