Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
föstudagur, 23. apríl 2010

Bridgefélag Rangæinga (19)

Verðlaunaafhending og lokakvölds-Barómeter.  Að vanda er vetrinum lokað hjá Bridgefélagi Rangæinga með því að félagarnir hittast á miðvikudagskvöldi, fyrir sumardaginn fyrsta, og gera sér glaðan dag.

þriðjudagur, 20. apríl 2010

Fyrra kvöld Vorbötler hjá BR

Baldvin Valdimarsson og Hjálmtýr Baldursson sigruðu fyrra kvöld af 2 í vörbötler BR 2010 Sjá nánar stöðuna á heimasíðu BR

þriðjudagur, 20. apríl 2010

Bridgefélag Hafnarfjarðar - Vortvímenningur

Gunnlaugur Sævarsson og Garðar Garðarsson vel efstir eftir fyrra kvöldið í 2ja kvölda vortvímenningi.

mánudagur, 19. apríl 2010

Staðan eftir tvö kvöld af þremur hjá BK

  Fimmtudaginn 15. apríl var spilað annað kvöldið af þremur í monrad tvímenning BK. Úrslit kvöldsins urðu þessi. Meðalskor var 196. 1. Sigurður Sigurjónsson-Ragnar Björnsson 281 2. Bernódus Kristinsson-Þórður Björnsson 270 3. Árni Már Björnsson-Heimir Þór Tryggvason 256 4. Björn Arnarsson-Halldór Þórólfsson 251 5. Gísli Þór Tryggvason-Leifur Kristjánsson 240 Staðan er þá þessi eftir þessi tvö kvöld.

sunnudagur, 18. apríl 2010

Briddsfélag Selfoss

miðvikudagur, 31. mars 2010

Páskatvímenningur Bridgefélags Hafnarfjarðar föstudaginn langa

PÁSKATVÍMENNINGUR BH FÖSTUDAGINN LANGA-SJÁ HÉR

þriðjudagur, 30. mars 2010

Aðalsveitakeppni BR 2010

Grant Thornton er með forystu að loknum 6 umferðum með 120 stig.

þriðjudagur, 30. mars 2010

Halldórsmót B.A.

Nú er lokið næst síðasta aðalmóti Bridgefélags Akureyrar sem er Halldórmótið. Mótið er hraðsveitakeppni þar sem bæði er reiknað sem Board-a-Match og sem impar.

þriðjudagur, 30. mars 2010

Páskamót Sjálfsbjargar: Garðar og Unnar fengu stærstu eggin!

Garðar Valur Jónsson og Unnar Atli Guðmundsson unnu Páskamót Bridgefélags Sjálfsbjargar með 64,9%. Í öðru sæti voru Árni Hannesson og Oddur Hannesson með 61,3%.

föstudagur, 26. mars 2010

Briddsfélag Selfoss

Íslandsbankatvímenningi Briddsfélags Selfoss lauk síðastliðin fimmtudag. Efstir og jafni urðu þeir Sigurður Vilhjálmsson og Þórður Sigurðsson, Þröstur Árnason og Ríkharður Sverrisson.

föstudagur, 26. mars 2010

Páskamót í Breifirðingabúð í kvöld

Föstudaginn 26.mars n.k. verður haldið Páskamót  í Breiðfirngabúð Faxafeni 14 Mótið hefst kl.

fimmtudagur, 25. mars 2010

Bridgefélag Rangæinga (16)

Spilað undir eldum!  Þann 23 síðastliðinn var haldið fjórða og næstsíðasta aðaltvímenningskvöld félagsins.  Séra Halldór hélt messu en ólíkt Jóni forðum náði hann ekki að kveða eldana niður en í staðinn færði hann söfnuðinn til hlýðni.

miðvikudagur, 24. mars 2010

Miðvikudagsklúbburinn: Ingólfur og Hermann unnu páskaegg!

23 pör mættu til leiks miðvikudaginn 24. mars. Ingólfur Hlynsson og Hermann Friðriksson unnu með 62,2% skor og unnu sér inn páskaegg. Eðvarð Hallgrímsson og Björn Árnason urðu í 2.

sunnudagur, 28. febrúar 2010

Stórsveitin Vesturlandsmeistarar

Vesturlandsmótið í sveitakeppni fór fram nú um helgina í Borgarnesi. Sjö sveitir mættu til leiks eftir að tvær heltust úr lestinni á síðustu stundu. Stórsveitin varð Vesturlandsmeistari og sveitir Sveinbjörns Eyjólfssonar og Jóns Eyjólfssonar unnu sér einnig rétt til að spila í undanúrslitum Íslandsmótsins.

föstudagur, 26. febrúar 2010

Bridgefélag Selfoss

Aðalsveitakeppni félagsins hófs fimmtudaginn 18. febrúar með þátttöku 6 sveita. Spilaðar voru tvær umferði og má sjá stöðuna hér. Síðast liðið fimmtudagskvöld var spilaður einskvöldstvímenningur, þar sem veðrið var eitthvað að trufla einhverja við að mæta.

föstudagur, 26. febrúar 2010

Úrslit í Kópavogi

Fimmtudaginn 25. febrúar var spilaður eins kvölda tvímenningur hjá bridgefélagi Kópavogs. Fjórtán pör mættu til leiks og fóru leikar þannig.   1.       Sigurður Sigurjónsson-Ragnar Björnsson                            192 stig 2.       Loftur Pétursson-Jón St Ingólfsson                                        191 stig 3.       Guðlaugur Bessason-Sverrir Þórisson                                   191 stig 4.       Heimir Þór Tryggvason-Árni Már Björnsson                       182 stig 5.       Baldur Bjartmarsson-Sigurjón Karlsson                                182 stig   Fimmtudaginn 4. mars hefst fjögurra kvölda hraðsveitarkeppni.

fimmtudagur, 25. febrúar 2010

Bridgefélag Rangæinga (12)

Aðalsveitakeppni lokakvöld Síðasta kvöldið í aðalsveitakeppni Bridgefélags Rangæinga fór fram núna á þriðjudaginn.  Eins og flestir vita var staðan fyrir kvöldið sú að maggarnir leiddu með 10 stiga mun og var um úrslitaleik að ræða þar sem þeir öttu kappi við þá sveit sem næst kom.

miðvikudagur, 24. febrúar 2010

Eins kvölda í Kópavogi 25. febrúar

Vegna breytinga á dagskrá verður spilaður eins kvölda tvímenningur 25. febrúar Spilað er í félagsheimilinu Gjábakka í Kópavogi. Spilamennska hefst kl.

miðvikudagur, 24. febrúar 2010

Barometer BK lokið

Fimmtudaginn 18.febrúar var þriðja og síðasta spilakvöldið í Barometer keppni Bridgefélags Kópavogs. Nokkur pör áttu möguleika á að sigra í þessari keppni og var spennan fram í síðustu setu.

miðvikudagur, 24. febrúar 2010

B.A: Fyrra kvöld Góutvímennings lokið

B.A: Fyrra kvöld Góutvímennings lokið  Síðastliðinn þriðjudag var spilað fyrra kvöld af tvemur í Góutvímenningi Bridgefélags Akureyrar. Þrjú efstu sætin tóku nokkuð afgerandi forystu þar sem fjórða sætið er með 51,1 %.