Fréttir - 2011 - 01
Einmenningur hjá B.A. 1.febrúar
Þriðjudaginn 1.febrúar verður gert stutt hlé á Akureyrarmótinu í sveitakeppni og spilaður einmenningur og eru allir hvattir til að láta sjá sig.
Miðvikudagsklúbburinn spilar á Bridgehátíð!
Miðvikudagsklúbburinn spilar á sama tíma og Stjörnutvímenningurinn á Bridgehátíð 2011. Spiluð verða sömu spil og í Stjörnutvímenningnum og fá sigurvegarar keppnisgjald í tvímenning Bridgehátíðar í verðlaun.
Akureyrarmótið í sveitakeppni
Töluverðar sviftingar urðu í toppbáráttunni á 3.
BR - Eins kvölds tvímenningur í Síðumúla 37 þriðjudag 25.jan
Spilaður verður eins kvölds tvímenningur í Síðumúla 37 þriðjudaginn 25.
Eins kvölds tvímenningur miðvikudaginn 26.jan á suðurnesjum
Vegna bridgehátiðar verður eins kvölds tvímenningur miðvikudaginn 26.janúar hjá bridgfélögunum á suðurnesjum. Keppni í butlertvímenningnum heldur svo áfram eftir bridgehátið.
Briddsfélag Selfoss
Guðmundur Gunnarssoon og Björn Snorrason náðu forystu í sveitakeppnístvímenning hjá Briddsfélagi Selfoss þegar tvö kvöld af 3 eru búin. Staðan á toppnum er þétt og verður síðasta kvöldið æsispennandi.
Reykjavíkurmót í sveitakeppni 2011
Reykjavíkurmeistarar í sveitakeppni 2011 er sveit Sparisjóðs Siglufjarðar, en í þeirri sveit spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Sverrir Ármannsson, Steinar Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni H Einarsson.
Eiður Már og Júlíus unnu þriggja kv. monrad-barómeter í Kópavogi
Feðgarnir Júlíus Snorrason og Eiður Már Júlíusson sigruðu örugglega í þriggja kvölda Monrad-barómeter Bridgefélags Kópavogs. Þeir voru í álíka stuði og Íslaenska Landsliðið í handbolta í gærkvöldi og fengu 63% skor þegar síðasta kvöldið var spilað.