Fréttir - 2011 - 02
Vesturlandsmót í tvímenningi
Vesturlandsmótið í tvímenningi verður spilað á Hótel Borgarnes laugardaginn 12.mars. Spilamennskan hefst klukkan 10:00. Skráning hjá Ingimundi í síma 8615171 eða á zetorinn@visir.
Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson sigruðu Barómeterinn í Kópavogi
Feðgarnir Eiður Mar Júlíusson og Júlíus Snorrason eru sigurvegarar í Barómeter Bridgefélags Kópavogs. Þeir náðu enn og aftur besta skori kvöldsins, 61%, þegar fjórða og síðasta lota var spiluð í kvöld.
Jón og Una með risaskor hjá B.A.
Þriðjudaginn 22.febrúar var fyrra kvöldið í Góumóti Bridgefélags Akureyrar sem er barómeter tvímenningur. Jón og Una tóku andstæðinga sína í nefið hvern af öðrum og enduðu með 69,1% skor! Efstu pör urðu: 1. Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir 69,1% 2. Valmar Valjaots - Víðir Jónsson 58,2% 3. Sigfús Aðalsteinsson - Sigfús Hreiðarson 53,6% 4. Hermann Huijbens - Ragnheiður Haraldsdóttir 53,0% 5.
Bridgefélag Hafnarfjarðar: Enn eykst spennan í Aðalsveitakeppninni!
Sveit Halldórs Svanbergssonar leiðir Aðalsveitakeppni BH 2011 með 4 stiga forskot þegar 2 umferðir eru eftir af keppninni. Sveit Jón Guðmars Jónssonar er í 2. sæti og 1 stigi þar á eftir er sveitin Nammi.
Akureyrarmeistarar í sveitakeppni 2011
Eftir 5 kvölda spilamennsku er ljóst að tryggur sigur er í höfn hjá sveit Guðmundar Halldórssonar í Akureyramótinu í sveitakeppni. Með honum spiluðu Þórólfur Jónasson, Sveinn Aðalgeirsson, Magnús E.
Hörku spenna í Barómeternum í Kópavogi
Í kvöld var spiluð þriðja lota af fjórum í Barómeter Bridgefélags Kópavogs. Birgir Örn og Ingvaldur náðu 66% skori í kvöld og eru komnir í toppbaráttuna.
Dagur og Bjarki unnu butlertvímenninginn á suðurnesjum og fá út að borða á Dinnerinn!
Fimmta og síðast kvöldið í Butlertvímenningi á suðurnesjum lauk í gær. Eftir 150 spil þá stóðu Dagur Ingimundarson og Bjarki Dagsson uppi sem sigurvegarar mótsins með 199 impa.
Miðvikudagsklúbburinn: Þorvaldur og Jón Viðar efstir af 24 pörum!
Miðvikudaginn 16. febrúar var spilaður einskvölds tvímenningur hjá Miðvikudagsklúbbnum. 24 pör mættu til leiks og efstir voru Þorvaldur Pálmason og Jón Viðar Jónmundsson með 60,2% skor.