Fréttir - 2011 - 10
KÓPAVOGSDEILDIN
Kópavogsdeildin í bridge auglýsir eftir áhugasömum bridgespilurum sem ekki hafa þann leiða ávana að spila einungis einn fimmtudag í mánuði!! Verkefni: Taka þátt í hinni bráðskemmtilegu AÐALSVEITAKEPPNI Bridgefélags Kópavogs sem hefst þann 03 nóvember næstkomandi.
Briddsfélag Selfoss
Kristján Már og Gísli Þórarinsson fengu mjög gott skor á fyrstakvöldi málarabutlersins sem hófst síðastliðið fimmtudagskvöld. Mótinu verður haldið áfram næstkomandi fimmtudag.
Júlíus og Eiður unnu Butlerinn í Kópavogi
Þrigja kvölda Butler-tvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í gærkvöldi. Eiður Mar Júlíusson og Júlíus Snorrason höfðu þar sigurþrátt fyrir að skora aðeins +8 impa síðasta kvöldið.
Austfirskir bridgespilarar
Vetrarstarf bridgespilara � Austurlandi er komi� � fullt sving. G��ur upptaktur er � starfi sambandsins og er ��tttakan � �eim m�tum sem b�in eru � starfs�rinu me� besta m�ti.
8 kvölda sveitakeppni BR
Sveit Sparisjóðs siglufjarðar er með nauma forystu eftir 3 umferðir með 59 stig. Næst kemur Íslenskt grænmeti með 56 stig.
BH: Miðvikudagsklúbburinn leiðir eftir 2 kvöld af 3 í Hraðsveitakeppni
Sveit Miðvikudagsklúbbsins leiðir eftir 2 kvöld af 3. Þeir eru með +101 impa. Í öðru sæti er sveit GSE með +82 og voru þeir með skor kvöldsins, +45. Í 3ja sæti er sveit Eðvarðs Hallgrímssonar með +42 og þeir voru jafnframt í 2. sæti yfir kvöldið með +41 impa.
Skráning í sveitakeppnina hjá BR hafin
Á morgun þriðjudaginn 25. október hefst 8 kvölda sveitakeppni. Spilaðir verða 10 spila leikir, 3 leikir á kvöldi. Fyrirkomulagið er mondrad fyrstu 4 kvöldin og síðan verður sveitum skipt upp í deildir þar sem efstu/neðsta færast á milli deilda eftir hvert spilakvöld.
Kristján og Helgi sigruðu Suðurgarðstvímenninginn á Selfossi
Síðastliðið fimmtudagskvöld lauk 3ja kvölda tvímenningi hjá briddsfélagi Selfoss með sigri Kristjáns Márs og Helga Grétars, skammt þar á eftir komu Guðmundur Þór og Björn.