Fréttir - 2011 - 09
Reykjavíkurdeildin: Hulduherinn og Skessuhorn leiða eftir 1. kvöld!
Sveitir Hulduhersins og Skessuhorns eru efstar með 18 stig eftir 1. kvöldið í Reykjavíkur Deildinni. Leik Sparisjóðs Siglufjarðar og VÍS var frestað og sveit Hulduhersins var í yfirsetu sem reynt verður að fylla upp í.
Hjálmar og Kristján leiða í Kóopavogi
Eftir tvö kvöld af þremur í Hausttvímenningi Bridgefélags Kóopavogs eru Kristján B Snorrason og Hjálmar S Pálsson efstir með 108,6 stig sem er samanlögð prósentuskor beggja kvöldanna.
Tvímenningskeppnir á BBO
Bridgefélag Reykjavíkur stendur fyrir 4 stuttum tvímenningsleikjum á BBO næsta föstudag. Spilamennska er skipulögð kl. 19:00, 20:00, 21:00 og 22:00 Hver lota er sjálfstæð.
Cavendis tvímenningur BR 2011
Jón Þorvarðarson og Haukur Ingason unnu mótið með nokkrum yfirburðum. Besta skor kvöldsins fengu Guðbrandur Sigurbergsson og Friðþjófur Einarsson, 1267 stig Lokastaðan Haukur Ingason - Jón Þorvarðarson 2458 stig Egill Darri Brynjólfsson - Örvar Óskarsson 2001 stig Ragna Briem - Þóranna Pálsdóttir 1951 stig Sveinn Rúnar Eiríksson - Júlíus Sigurjónsson 1863 stig Jón Sigurbjörnsson - Björk Jónsdóttir 1413 stig Sjá nánar á heimasíðu BR Næsta mót er hraðsveitakeppni, þrjú kvöld Allir velkomnir.
Startmóti BA lokið. Greifamót næst.
Eftir jafna og spennandi baráttu stóðu Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson uppi sem sigurvegarar en þeir unnu stórt innbyrðis setu við Reyni og Frímann í næst síðustu umferð.
Briddsfélag Selfoss og nágrennis
Vetrarstarf Briddsfélags Selfoss og nágrennis hefst föstudaginn 30. september með aðalfundi. Fundurinn hefst kl.20:00 í Tryggvaskála. Að loknum aðalfundarstörfum verður svo tekið í spil.
BR - Aron með fyrirlestur kl. 18 í dag um sagnvenjur
Aron Þorfinnsson mun í dag kl. 18 vera með fyrirlestur og umræður um sagnvenjur. Til dæmis ýmsar lebensohl-stöður og algengar sagnvenjur. Meðal annars út frá því sjónarmiði að pör eru oft að nota sagnvenjur sem koma mjög sjaldan upp og eru þar af leiðandi að missa af ýmsum tækifærum fyrir algengari stöður.
BH: Svala og Garðar byrja með 66,1% í Gamla vínhús mótinu!
Svala Pálsdóttir og Garðar Garðarsson eru efst með 66,1% eftir 1. kvöldið af 3 í Gamla vínhús móti Bridgefélags Hafnarfjarðar. Næst eru María Haraldsdóttir og Sverrir Þórisson með 56,5% og í 3ja sæti eru Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason með 55,6%.