Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 31. maí 2011

Bridgefélag Selfoss: Kristján Már Gunnarsson bronsstigakóngur vetrarins

Komin eru inn á heimasíðu Bridgefélag Selfoss yfirlit yfir bronsstig vetrarins. Bronsstigakóngur vorsins var Sigfinnur Snorrason með 186 bronsstig. Bronsstigakóngur haustsins var Helgi Grétar Helgason með 160 bronsstig, og bronsstigakóngur alls vetrarins var Kristján Már Gunnarsson með 248 bronsstig.

laugardagur, 28. maí 2011

Golf og Bridge-spilagjöf og golf komið inn

Þá er lokið Golf og bridge móti 2011 í frábæri veðri Reiknimeistari Golfsins misreiknaðisig aðeins og bjó til nýja reglu í golfi, sem hann að vísu lofaði að hann skildi aldrei nota aftur :) en hann fékk fékk niðurstöðu sem allir sættu sig við, en þá er fundin út % skor hjá golfurum og bridgerum það lagt saman og deilt með 2  En úrslit í golf og bridge var eftirfarandi 1 sæti Halldór Svanbergsson Valur B.

laugardagur, 28. maí 2011

Sumarbridge og Alheimstvímenningur hjá B.A.

Bridgefélag Akureyrar mun taka þátt í Alheimstvímenning þar sem sömu spil verða spiluð víða um heim á sama tíma. Á Akureyri verður hann spilaður föstudaginn 3.júní kl 19:00 í Skipagötu 14. Keppnisgjald verður 1000kr á mann og með fylgir bæklingur um spilin.

fimmtudagur, 26. maí 2011

Garðar Garðarsson bronsstigameistari!

Bronsstigameistari á Suðurnesjum er Garðar Garðarsson með 455 bronsstig. Annar varð Gunnlaugur Sævarsson með 329 bronssig og svo komu feðgarnir Dagur og Bjarki með 302 bronsstig.

laugardagur, 21. maí 2011

Árshátíð kvenna 2011

Árshátið kvenna fór fram 21.maí í veislusalnum skútan í Hafnarfirði. Hátíðin hófst kl. 11 með fordrykk og svo var borinn fram dýrindis matur. Spilamennska hófst um 13:30. Sigurvegarar dagsins eru þær Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir með 60,9% skor Dagurinn heppnaðis vel í alla staði og á árshátíðarnefndin hrós skilið fyrir þetta.

föstudagur, 20. maí 2011

Golf-Bridge á Hellu

"Golf-Bridge-mótið verður haldið á Strandarvelli, Hellu, laugardaginn 28.maí nk. Ræst verður á öllum teigum kl 10.oo. Eftir golfið verður matast og síðan briddsað.

miðvikudagur, 18. maí 2011

Sumarbridge: Ísak og Helgi unnu 2. kvöldið af 2 !

Ísak Örn Sigurðsson og Helgi Sigurðsson eru með 100% árangur í Sumarbridge. Þeir hafa unnið bæði kvöldin sem hefur verið spilað og má búast við þeim fyrnasterkum næsta mánudag.

þriðjudagur, 17. maí 2011

Sumarbridge: Ísak og Helgi fyrstu sigurvegarar Sumarbridge 2011

Ísak Örn Sigurðsson og Helgi Sigurðsson unnu fyrsta spilakvöld Sumarbridge. Þeir gerðu sér lítið fyrir og skoruðu tæplega 64%. Næsta spilakvöld Sumarbridge er miðvikudagurinn 18. maí.