Fréttir - 2012 - 05
Sumarbridge: Hermann og Gunnlaugur með 64,8%
Hermann Friðriksson og Gunnlaugur Sævarsson skoruðu 64,8% í 20 para tvímenning miðvikudaginn 23. maí. Þetta er hæsta skor í Sumarbridge þetta árið. Sumarbridge er spilað mánudaga og miðvikudaga og byrjar spilamennska kl 19:00. ALLIR spilarar eru velkomnir og er tekið vel á móti öllum.
Sumarbridge B.A. hafið!
Nú er lokið aðalfundi Bridgefélags Akureyrar og fyrsta kvöldið Sumarbridge. Alla þriðjudaga kl 19:30 í sumar verða tvímenningar í Lionssalnum að Skipagötu 14 svo endilega mæta þar.
Golf-Bridge á Strönd
G o l f - b r i d g e. Nr. 4 Verður haldið á Strönd (Hellu) laugardaginn 09. Júní nk. Ræst í golfinu á öllum teigum kl. 10.oo.
Bridgefélag Selfoss: Magnús Guðmundsson bronsstigakóngur vorsins 2012
Komin eru inn yfirlit yfir brons- og silfurstig sem skoruð voru hjá félaginu vorið 2012. Bronsstigakóngur vorsins 2012 varð Magnús Guðmundsson með 177 bronsstig.
Jón Steinar Ingólfsson Bronsstigameistari BK 2011-2012
Jón Steinar Ingólfsson er Bronsstigameistari Bridgefélags Kópavogs veturinn 2011-2012 með 305 stig.
Oddur og Árni efstir í Sumarbridge
Góð þáttaka var á öðru spilakvöldi í Sumarbridge þann 16 maí en spilað var á 12 borðum. Bræðurnir Árni og Oddur Hannessynir sigruðu með þriggja prósenta mun og geta valið um bridgebók eða frítt næst í verðlaun.
AÐALFUNDUR BK FÖSTUDAGINN 18 MAÍ
Aðalfundur Bridgefélags Kópavogs fer fram föstudaginn 18 maí kl. 20:00 á heimili Þorsteins Berg að Fjallalind 7. Almenn aðalfundarstörf. Stjórnin.
Sumarbridge: Jón Bjarki og Þórður fyrstu sigurvegarar!
Þórður Sigurðsson og Jón Bjarki Stefánsson unnu fyrsta spilakvöld í Sumarbridge 2012. Þeir enduðu með 58,9% og annað sæti féll í hlut Halldórs Þorvaldssonar og Magnúsar Sverrissonar með 57,7%.