Fréttir - 2012 - 11
Briddsfélag Selfoss
Staðan á toppnum breyttist ekkert á þriðja kvöldið aðaltvímenningsins. Eitt kvöld er eftir sem spilað verðu næstkomandi fimmtudag.
Háspenna fyrir lokaumferðina í Kópavogi
Þegar aðeins er eftir að spila síðustu umferðina í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs geta enn fjórar sveitir unnið mótið en til þess þarf sveit Sveins Símonarsonar að vinna sveit Björns Halldórssonar 25-2. Efstu tvær sveitirnar töpuðu báðar í tíundu umferð og þannig hélst spennan fram í lokaumferðina sem verður spiluð næsta fimmtudag.
Rangæingar -- öflugir Árnesingar
Þriðjudaginn 28. nóvember var 3ja kvöld af 5 í Butler spilað. Þeir yngissveinar Brynjólfur Gestsson og Garðar Garðarsson, frá Selfossi, sem heiðrað hafa okkur Rangæinga með þátttöku sinni undanfarin kvöld, áttu langbesta skorið þetta kvöld, heila 63 impa í 26 spilum.
Akureyrarmót í tvímenningi 3.kvöld
Enn fjölgar fingrum Frímanns og Reynir á bikarnum svo að senn má tala um heila krumlu. Þó er ekki öll nótt úti enn og eitt kvöld eftir. Efstu pör: 1. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason 58,5% 2. Sveinn Pálsson - Hilmar Jakobsson 54,5% 3.
BH: Stefán og Ísak með hæsta samanlagða skor úr 2 Mitchell tvímenningum
Hulda Hjálmarsdóttir og Andrés Þórarinsson voru efst í NS með 63,4% og Ísak Örn Sigurðsson og Stefán Jónsson voru efstir í AV með 65,9%. Þetta skor dugði Ísak og Stefáni til að enda efstir í samanlögðu skori úr 2 Mitchell tvímenningum.
Afmælismót BK: Skorblöð paranna komin á heimasíðuna
Skorblað hvers pars fyrir sig er nú komið á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs Einnig var gerð leiðrétting hjá pörum 11 og 23 í spili 41 sem var skrað í ranga átt.
Anton og Sigurbjörn unnu Afmælismót BK
Fimmtíu ára afmælismót Bridgefélags Kópavogs fór fram í Gullsmára 13 í dag. 45 pör mættu til leiks og spiluðu mjög skemmtilegt og vel heppnað mót. Spilaðar voru 11 umferðir eftir monrad, 44 spil alls.
Jólamót Bridgefélags Dalvíkur og Ólafsfjarðar
Gústaf og félagar í BDÓ efndu til skemmtilegs föstudagsmót 23.nóvember með þáttöku 16 para allt frá Siglufirði til Akureyrar. Vinningar voru veglegir og eftir harða baráttu urðu efstu pör: 1. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson 60,5% 2. Eiríkur Helgason - Sæmundur Andersen 58,2% 3. Gústaf Þórarinsson - Helgi Indriðason 57,4% Öll úrslit og spil má sjá hér.