Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 31. júlí 2012

Svartsýn pör í þremur efstu sætum hjá BA

Sú óvenjulega staða kom upp að þau 3 pör sem hvað mest börmuðu sér yfir genginu og að allt hefði verið í rugli lentu á topp þremur! Hlutskarpastir urðu Pétur Guðjónsson og Anton Haraldsson en Frímann, Reynir og Gissur, Viggó fylgdu á eftir.

mánudagur, 30. júlí 2012

Jón Ingþórs og Kristinn Ólafs efstir í sumarbridge

Jón Ingþórsson og Kristinn Ólafsson náðu mjög góðu skori í sumarbridge mánudaginn 30 júlí, eða 64,9%. Björgvin Már Kristinsson og Sverir G. Kristinsson fengu 64% en urðu að sætta sig við annað sætið með það ágæta skor.

þriðjudagur, 24. júlí 2012

Golfarar unnu hjá B.A.

Það voru þeir Pétur Gíslason og Valmar Valjaots sem unnu 14 para tvímenning í Sumarbridge B.A. þann 24.júlí á 4 höggum undir pari eða 61,4%.

þriðjudagur, 10. júlí 2012

Óvæntur sigur hjá B.A.!

Fyrirsögnin á heima í mengi ósannra fullyrðinga því annað kvöldið í röð vinnur Pétur Guðjónsson, nú með Stefáni Ragnarssyni en síðast með Antoni Haraldssyni :) Heildarstöðu öll kvöld sumarsins má sjá hér

fimmtudagur, 5. júlí 2012

Bridgefélag Hafnarfjarðar-Madeira 2012

Bridgefélag Hafnarfjarðar hefur ákveðið að styrkja félagsmenn til Madeira 2012 í Bridgemót  Styrkurinn verður mest kr. 50.000 á félagsmann (gæti lækkað aðeins ef fjöldinn verður mikill) en upphæð ræðst eftir hvað félagar hafa spilað mikið hjá okkur síðustu 3 árin.