Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 26. júní 2012

Tom Cruise og Bill Hughes á Akureyri!

Jú, en einungis annar þeirra stóð fyrir samkeyrðum tvímenning kenndan við sjálfan sig í Sumarbridge BA. Bestur árangur á Akureyri var hjá Smára Víglundssyni og Marínó Steinarssyni með 60,2% skor í salnum.

mánudagur, 25. júní 2012

Sumarbridge: Bill Hughes Alheimstvímenningur

Hanna Friðriksdóttir og Inga Lára Guðmundsdóttir náðu hæsta skori í Sumarbridge í Reykjavík. Eins og er, eru þær hæstar á heimsvísu en flest úrslit koma inn á morgun og verður fróðlegt að sjá hvað 66,7% fleytir þeim hátt.

mánudagur, 25. júní 2012

Sumarbridge: Bill Hughes alheimstvímenningur mánudaginn 25. júní

Mánudaginn 25. júní verður spilaður Bill Hughes alheimstvímenningur. Síðasta ár voru á bilinu 100-200 klúbbar sem tóku þátt í þessum alheimstvímenningi.

þriðjudagur, 19. júní 2012

Sumarbridge B.A. og samkeyrður tvímenningur

Nýjustu úrslit í Sumarbridge má sjá hér en síðustu tvö kvöld hafa unnið Anton Haraldsson, Pétur Guðjónsson og Hjalti Bergmann, Stefán Sveinbjörnsson.

mánudagur, 18. júní 2012

Aðalfundur BR í kvöld

Fundurinn hefst kl. 17:30 og lýkur áður en spilamennska í Sumarbridge hefst.   Hvetjum alla til að mæta.

sunnudagur, 10. júní 2012

Ungmennafélag Íslands 50+

Sveitakeppni UMFÍ 50+ var haldin í Mosfellsbæ 9. júní 2012.  Sigurvegari var sveitin Gaman Saman og í sveitinni spiluðu Halldóra Magnúsdóttir, Soffía Daníelsdóttir, Guðlaugur Bessason og Stefán Garðarsson.

þriðjudagur, 5. júní 2012

Sumarbridge B.A. í fullum gangi

Síðustu tvö kvöld hafa unnið Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson ásamt Frímanni Stefánssyni og Reyni Helgasyni.

sunnudagur, 3. júní 2012

Aðalfundur BR

Aðalfundur BR verður haldinn mánudaginn 18. júní kl. 17:30 í Síðumúla 37 (húsnæði BSÍ).  Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundastörf. Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.