Fréttir - 2012 - 09
Briddsfélag Selfoss
Starfið hjá Briddsfélagi Selfoss hófst á föstudagskvöldið 28. september með aðalfundi og spilamennsku. Hefðbundin fimmtudagsspilamennska hefst svo næstkomandi fimmtudag með þriggjakvölda tvímenningi þar sem tvö bestu kvöldin telja til úrslita.
Guðný og Björgvin Már tóku forystuna í Kópavogi
Annað kvöldið af þremur í Hausttvímennini Bridgefélags Kópavogs var sppilað í kvöld. Guðný Guðjónsdóttir og Björgvin Már Kristinsson urðu efst og tóku einnig forystuna í heildarkeppninni.
Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson burstuðu Hótel Hamar tvímenning BR 2012
Lokakvöld Hótel Hamar Cavendish tvímennings BR 2012 lauk með yfirburðasigri Jóns Baldurssonar og Þorláks Jónssonar sem fengu einnig langhæstu skor kvöldsins.
Startmót B.A. seinna kvöld
Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson skutu öðrum aftur fyrir sig á Startmóti B.A.
Bridgefélag Selfoss: Aðalfundur og spil 28. sept.
Nú fer starfsemi Bridgefélags Selfoss í vetur senn að hefjast. Boðað hefur verið til Aðalfundar í Tryggvaskála föstudaginn 28. september nk. kl. 20:00. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf og verðlaunaafhendingu fyrir síðasta vetur verður tekið í spil.
Fyrirlestur BR í kvöld
Þá er komið að fyrsta fyrirlestri vetrarins. Sveinn Rúnar Eiríksson ætlar að mæta og ræða við okkur um Ólympíumótið í sumar. Val landsliðsins, undirbúning, mótið sjálft og síðan verða umræður.
Föstudagsdeildin fellur niður
Fyrirhuguð keppni í Föstudagsdeildinni sem átti að hefjast í kvöld fellur niður vegna þátttökuleysis. Kveðja, Stórn BR.
Gísli og Leifur byrja Hausttvímenninginn vel
Fyrsta kvöldið af þremur í Hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Spilað var á 11 borðum og urðu Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson hlutskarpastir en staða efstu para er mjög jöfn.