Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
mánudagur, 29. apríl 2013

Árshátíð bridgekvenna 4.maí 2013

Sjá auglýsingu hér

mánudagur, 29. apríl 2013

ATH. Ekki er spilað í BH í kvöld Sjáumst hress í haust

laugardagur, 27. apríl 2013

Davíðsmót í Dölum vestur

Hið árlega Davíðsmót fór fram í Tjarnarlundi í Saurbæ í dag. Sautján pör mættu til leiks og spiluðu sjö umferðir eftir monrad, samtals 28 spil. Mótið hófst um hádegisbil með dýrindis kjötsúpu og brauði en síðan hófst spilamennskan sem var síðan stöðvuð um hálf fjögur með kaffi og kökuhlaðborði og síðan spilað til rúmlega fimm.

föstudagur, 26. apríl 2013

Rangæingar -- Lokakvöld....og lagið var tekið.....

Síðasta vetrardag öxluðu Rangæingar skinn sín og skunduðu á Flúðir, hvar verkefnið var að ljúka vetrarstarfinu.  Þar snæddum við dýrindis kvöldverð á Icelandair hótelinu.

fimmtudagur, 25. apríl 2013

Kristján og Ásmundur rétt mörðu sigur

Þriggja kvölda Moradtvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld með afar naumum sigri þeirra Kristjáns Snorrasonar og Ásmundar Örnólfssonar. Samanlögð prósentuskor kvöldanna þriggja gilti til verðlauna og höfðu Kridtján og Ásmundur um tíma 5 prósentur i forskot á næsta par en gáfu eftir í lokin og enduðu með aðeins 0,1% meira en þeir Ragnar Björnsson og Sigurður Sigurjónsson.

föstudagur, 29. mars 2013

Páskamót BH 2013: Bjarni og Aðalsteinn sigurvegarar!

Bjarni Einarsson og Aðalsteinn Jörgensen skutust á toppinn á réttu augnabliki og tryggðu sér sigur í árlegu Páskamóti BH 2013, Þeir enduðu með 57,6%.

fimmtudagur, 28. mars 2013

BH: Magnús og Halldór unnu páskabutlerinn

Magnús Sverrisson og Halldór Þorvaldsson unnu tveggja kvölda Páskabutler BH.  Guðlaugur Sveinsson og Baldur Bjartmarsson voru í 2. sæti og í 3ja sæti voru Pétur Sigurðsson og Ólafur Þór Jóhannsson.

fimmtudagur, 28. mars 2013

Miðvikudagsklúbburinn: Kristján og Baldur unnu sér inn páskaegg!

Kristján Snorrason og Baldur Bjartmarsson unnu sér inn sitthvort risa páskeggið á spilakvöldi hjá Miðvikudagsklúbbnum.  Í 2. sæti var Runnalaufs-tvíeykið Þórður Þórðarson og Þorvaldur Pálmason og 3ja sætið varð hlutskipti Þorgerðar Jónsdóttur og Aðalsteins Jörgensen.

miðvikudagur, 27. mars 2013

Rangæingar -- Pattaralegur peyji og Eyji...alla vega eftir páska

Þann 26. mars sl. var spilaður páskabarómeter hjá Rangæingum (Krappabarómeterinn) en Krappi ehf. gefur páskaeggin sem veitt voru verðugum í verðlaun.

mánudagur, 25. mars 2013

Úrslit úr HSK móti eldri borgara í Bridge

Fyrsta HSK mótið í bridds fyrir keppendur 67 ára og eldri var haldið í Selinu á Selfossi laugardaginn 16. mars sl. 14 pör tóku þátt og fyrstu HSK meistarar eldri borgara urðu þeir Helgi Guðmundsson og Pétur Skarphéðinsson.

sunnudagur, 24. mars 2013

Halldór og Magnús unnu Páskatvímenning Breiðfiriðinga

Páskatvímenningur Breiðfirðingafélagsins var spilaður í kvöld. Spilaður var Monrad-barómeter og mættu 18 pör til leiks. Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson tóku forystuna strax í fyrstu umferð og héldu henni til loka.

sunnudagur, 24. mars 2013

Suðurlandsmót í tvímenning -- síungir Suðurlandsmeistarar

Suðurlandsmótið í tvímenning var haldið á heimavelli Bridgefélags Rangæinga að Heimalandi undir V-Eyjafjöllum, laugardaginn 23. mars.  18 pör mættu til leiks og fóru leikar svo að Gísli Þórarinsson og Þórður Sigurðsson urðu Suðurlandsmeistarar með 59,7% skor.

laugardagur, 23. mars 2013

Halldórsmót B.A. og Svæðamót NEy

Eftir tvö kvöld af þremur í Board-a-match sveitakeppni B.A. leiðir sveit Frímanns Stefánssonar. Með honum spila Kristinn Þórisson, Björn Þorláksson og Pétur Gíslason.

fimmtudagur, 28. febrúar 2013

Rangæingar -- Góðglaðir höfðu jólasveinana undir

Þriðjudaginn 26. febrúar lauk sveitakeppni félagsins.   Sveitakeppnin er þannig upp sett að spilastjóri raðar pörum saman í sveitir með það að markmiði að sveitir verði sem jafnastar.

fimmtudagur, 28. febrúar 2013

Miðvikudagsklúbburinn: Óskar og Gunnar Helgi efstir með 61,7%

Óskar Jónsson og Gunnar Helgi Hálfdánarson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með 61,7% skor. Í 2. sæti voru Jón Hákon Jónsson og Sigtryggur Jónsson með 56,7% og 3. sætið varð hlutskipti Eiríks Sigurðssonar og Sigurðar Kristjánssonar.

miðvikudagur, 27. febrúar 2013

Sveitakeppnismeistarar á Suðurnesjum

Þeir Gunnar Guðbjörnsson og Jóhannes Sigurðsson komu, sáu og sigruðu í Sveitarokki á Suðurnesjum. Svavar Jensen var með þeim í pari. Þeir leiddu nánast allan tíman og unnu að lokum með 25 impa mun.

þriðjudagur, 26. febrúar 2013

Jón og Þorlákur sigruðu Aðaltvímenning BR 2013

Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson unnu sannfærandi sigur í Aðaltvímenning BR. En aldrei hefur verið minni munur í baráttunni um annað sætið. Aðeins skildu 1,4 stig milli 2 og 5 sætis.

þriðjudagur, 26. febrúar 2013

BH: Ísak og Stefán/Vignir leiða Aðaltvímenninginn eftir 3 kvöld af 4

Ísak Örn Sigurðsson og Stefán Jónsson/Vignir Hauksson leiða Aðaltvímenning BH þegar 3 kvöld eru búin af 4.  Þeir eru með 60,6%. Í 2. sæti eru Hlynur Angantýsson og Helga Bergmann/Guðný Guðjónsdóttir með 57,6% og í 3ja sæti Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson með sama prósentuskor.

sunnudagur, 24. febrúar 2013

Hraðsveitakeppni að hefjast í Kópavogi

Næsta keppni hjá Bridgefélagi Kópavogs er fjögurra kvölda Hraðsveitakeppni sem hefst næsta fimmtudag. Skráning hjá Hjálmari s. 898-3181 og Þórði s.

föstudagur, 22. febrúar 2013

Bridgefélag Selfoss: Sveit Gunnars Þ. efst eftir 6 umferðir

Nú eru 6 leikir af 8 búnir í aðalsveitakeppni Bridgefélags Selfoss. Spilaðir eru 2 14 spila leikir á kvöldi. Efstir í mótinu er sveit Gunnars Þ.