Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 30. desember 2014

Bragi og Helgi burstuðu Minningarmót Sigtryggs Sigurðssonar

Bragi Hauksson og Helgi Jónsson burstuðu minninarmót Sigtryggs Sigurðssonar og Yfirburðirnir voru miklir.  Meir en 100 stig.

þriðjudagur, 30. desember 2014

Bronsstig hjá BK komin á netið.

Bronsstigin fram að jólum hjá Bridgefélagi Kópavogs eru komin á heimasíðuna. Páll Valdimarsson trónir þar á toppnum en velgegni í nýlokinni Aðalsveitakeppni gaf slatta af uppbótarstigum.

sunnudagur, 28. desember 2014

Rangæingar Jólamót -- Á ýmsu gekk!

Sunnudaginn 28. desember á spilastjóri Rangæinga afmæli.   Þann dag var haldið mót, að vísu ekki honum til heiðurs, heldur var það hið árlega jólamót félagsins.

sunnudagur, 28. desember 2014

Íslandsbankamótið á Akureyri

Íslandsbankamótið fór fram þann 28. des og var verulega spennandi. Baráttan um flugeldana var enda hörð allt fram á lokaspil. Sigurvegarar urðu Gylfi Pálsson og Helgi Steinsson aðeins 2 stigum ofan við Pétur Guðjónsson og Sigurbjörn Haraldsson.

laugardagur, 27. desember 2014

Raunstaða Jólamóts Hafnarfjarðar

Hér er hægt að fylgjast með Jólamóti BH spil fyrir spil:  www.bridge.is/meistarastig/bh/ 2014-12-27.

fimmtudagur, 25. desember 2014

Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar.

 HIÐ ÁRLEGA JÓLAMÓT BRIDGEFÉLAGS HAFNARFJARÐAR verður haldið laugardaginn 27. desember að Flatahrauni 3 og hefst mótið klukkan 13:00. Hægt er að skrá sig á mótið hér.

mánudagur, 22. desember 2014

Rangæingar -- Jólamót í óviðjafnanlegu umhverfi

Sunnudaginn 28. desember höldum við Rangæingar okkar árlega jólamót.  Spilað verður í golfskálanum á Strönd í fallegasta umhverfi sem spilað er í á Íslandi og þó víðar væri leitað.

mánudagur, 22. desember 2014

GLEÐILEG JÓL + VORDAGSKRÁ BK

Bridgefélag Kópavogs óskar öllum bridgespilurum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ár og þökkum öllum þeim er spiluðu hjá okkur á árinu fyrir skemmtilegar stundir.

föstudagur, 19. desember 2014

Afmælismót Jóns Baldurssonar: Raunstaða spil fyrir spil

http://www.bridge.is/meistarastig/midvikudagsklubburinn/20142015/2014-12-19.

sunnudagur, 30. nóvember 2014

Briddsfélag Selfoss

Þá er lokið þremur kvöldum af fjórum í aðaltvímenningi félagsins. Efstir þetta kvöld urðu þeir Guðmundur Sæmundsson og Sigurður Vilhjálmsson, í hæla þeirra nörtuðu svo bræðurnir Anton og pétur.

sunnudagur, 30. nóvember 2014

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafarfjarðar

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar hefst í kvöld. Skráning á spilastað.

laugardagur, 29. nóvember 2014

Jólamót Við Höfnina á Dalvík

Þann 28.nóvember var hið stórskemmtilega jólamót  Við Höfnina   á Dalvík sem Gústi stendur fyrir. Mætingin var mjög góð eða 18 pör. Margir spilarar fóru út með fangið fullt af skinkum og konfekti en sigurvegarar urðu Stefán Sveinbjörnsson og Jón Tryggvi.

föstudagur, 28. nóvember 2014

Æsispennandi keppni um annað sætið hjá BK

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs hélt áfram í gærkvöldi og er nú lokið 10 umferðum af 13. Sveit Matthíasar Þorvaldssonar er með 30 stiga forystu þegar aðeins eru 60 stig eftir í pottinum en keppnin um silfur- og bronsverðlaunin er æsispennandi.

fimmtudagur, 27. nóvember 2014

Rangæingar -- Teknir í....eehhhh.... fangið?

Sl. þriðjudagskvöld komu framsóknarmenn og aðrir spilarar saman að Heimalandi til að leika 3ju umferð í 5 kvölda BUTLER-tvímenningi félagsins.   Spiluð voru 28 spil með Monrad fyrirkomulagi og mættu 13 pör til leiks.

fimmtudagur, 27. nóvember 2014

Miðvikudagsklúbburinn: Unnar og Ingibjörg efst af 33 pörum!

Unnar Atli Guðmundsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir unnu 33 para tvímenning með 61,2% skor. Í 2. sæti voru Harpa Fold Ingólfsdóttir og Vignir Hauksson með 60.6% og í 3ja sæti voru Jón Viðar Jónmundsson og Þorvaldur Pálmason með 60%.

þriðjudagur, 25. nóvember 2014

Hraðsveitakeppni BH: Sveit Sigujóns Björnssonar sigurvegari!

Sveit Sigurjóns Björnssonar vann 3ja kvölda Hraðsveitakeppni BH með +174 impa. Í 2. sæti varð sveit Drafnar Guðmundsdóttur með +119 impa og í 3ja sæti varð sveit Vestra með +107 impa.

laugardagur, 22. nóvember 2014

Briddsfélag Selfoss

Lokið er tveimur kvöldum af 4 í aðaltvímenningi félagsin. Efstir þetta kvöld urður þeir Höskuldur og Eyþór.

föstudagur, 31. október 2014

Briddsfélag Selfoss

Eftir tvö kvöld af þremur í málarabutler félagsins er Anton Hartmannsson lang efstur, að þessu sinni var hann með Ríkharði Sverrissyni. Í öðru sæti eru þeir Kristján Már og Karl Hermannsson.

föstudagur, 31. október 2014

Sveit Björns Halldórssonar tók forystuna í Kópavogi

Sveit Björns Halldórssonar hefur 6 stiga forystu eftir tvær fyrstu umferðirnar í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs.

fimmtudagur, 30. október 2014

Bridgefélag nýliða-úrslit 30.okt

Spilað á 5 borðum í kvöld 30. október. Valgerður og Unnur sigruðu en fast á hæla þeirra voru Bergþóra og Kristjana og þriðja sætið tóku Rán og Kristín.