Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
mánudagur, 14. maí 2012

Sumarbridge: Jón Bjarki og Þórður fyrstu sigurvegarar!

Þórður Sigurðsson og Jón Bjarki Stefánsson unnu fyrsta spilakvöld í Sumarbridge 2012. Þeir enduðu með 58,9% og annað sæti féll í hlut Halldórs Þorvaldssonar og Magnúsar Sverrissonar með 57,7%.

sunnudagur, 29. apríl 2012

Aðalfundur BH

Aðalfundur BH verður haldinn Föstudaginn 4.maí. í Ahansen Félagsmenn og aðrir velunnarar vinsamlegast meldið ykkur til Sigurjón sigurjon@tolvustod.is sem fyrst.

laugardagur, 28. apríl 2012

Uppfærð bronsstigastaða hjá Bridgefélagi Kópavogs

Hörð keppni er um Bronsstigameistara Bridgefélags Kópoavogs. Nú þegar tvö kvöld eru eftir af vetrarstarfinu má sjá nýjustu tölur á heimasíðunni.

föstudagur, 27. apríl 2012

Bridgefélag Selfoss

Brynjólfur Gestsson og Helgi Hermansson sigrðu lokatvímenning Briddsfélags Selfoss. Þetta var síðastamót vetrarins. Þakkar stjórn félagsins öllum fyrir þátttökuna í vetur og vonumst við til að sjá sem flesta í haust aftur.

föstudagur, 27. apríl 2012

Þórður og Jörundur unnu 3ja kvölda Monrad-tvímenning

Í gærkvöldi lauk þriggja kvölda tvímenningi hjá Bridgefélagi Kópavogs og náðu Ragnar Björnsson og Sigurður Sigurjónsson besta skori kvöldsins með 57,1% en feðgarnir Þórður Jörundsson og Jörundur Þórðarson sigruðu hinsvergar heildarkeppnina með 55,4% meðalskor út úr kvöldunum þremur.

þriðjudagur, 24. apríl 2012

Impamót B.A. og næstu kvöld

Nú er lokið síðasta aðalmóti B.A. þennan veturinn en það var Impatvímenningur sem Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson unnu eftir spennandi lokasprett.

þriðjudagur, 24. apríl 2012

Vortvímenningur BR 2012

Að loknum 3 kvöldum af 4 er æsispennandi og jöfn keppni á toppnum. 1. Sigurpáll Ingibergsson - Hlynur Garðarsson  = 1360,3 stig 2. Guðjón Sigurjónsson - Vignir Hauksson = 1346,2 stig 3. Rúnar Einarsson - Skúli Skúlason       = 1341,3 stig Lokakvöldið er svo spilað 1 maí.

fimmtudagur, 19. apríl 2012

Jón Steinar og Guðlaugur í forystu í Kópavogi

Eftir tvö kvöld af þremur í Monrad-tvímenningi Bridgefélags Kópavogs eru Guðlaugur Bessason og Jón Steinar Ingólfsson með nauma foryst með 0,6% hærra skor en Baldur Bjartmarsson og Halldór Þorvaldsson/Sigurjón Karlsson sem eru í öðru sætinu.

þriðjudagur, 17. apríl 2012

Vortvímenningur BR 2012

Staðan er... 1. Guðjón Sigurjónsson - Vignir Hauksson  = 963,2 stig 2. Rúnar Einarsson - Skúli Skúlason       = 919,3 stig 3.

föstudagur, 30. mars 2012

Akranestvímenningur 2012

Fimmtudaginn 29. mars lauk Akranestvímenningnum 2012.  13 pör tóku þátt og úrslit má sjá hér.

föstudagur, 30. mars 2012

Briddsfélag Selfoss

Höskuldur Gunnarsson og Eyþór Jónsson sigruðu Íslandsbankabarometer briddsfélag Selfoss og nágrennis. Næst verður spilað fimmtudaginn 12. apríl og hefst þá síðasta mót vetarains sem er tveggja kvölda tvímenningur.

fimmtudagur, 29. mars 2012

Sigurður og Ragnar unnu Páskatvímenning BK

Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson sigruðu Páskatvímenning Bridgefélags Kópavogs sem spilaður var í gærkvöldi og fengu vegleg páskaegg að launum.

miðvikudagur, 28. mars 2012

Einstefna hjá Óla Þór og Arnóri á Suðurnesjum

Fjórða kvöldið í sveitarokki var í kvöld miðvikudag og halda þeir Óli Þór Kjartansson og Arnór Ragnarsson áfram einstefnu sinni og fengu 77 IMPa í kvöld og eru langefstir með 190,3 IMPa.

miðvikudagur, 28. mars 2012

Bridgehátíð í Úthlíð

   Laugardaginn 31. mars verður tvímenningskeppni í bridge í Úthlíð Biskupstungum.  Þetta er tilvalið tækifæri fyrir áhugasama bridsara til að njóta þessarar göfugu íþróttar í fögru umhverfi og skemmtilegum félagsskap.

miðvikudagur, 28. mars 2012

Páska-Monrad-barómeter hjá BK annað kvöld

Fimmtudaginn 29 mars verður eins kvölds Páskatvímenningur með viðeigandi "eggjum" í verðlaun. Spilaður verður Monrad-barómeter, sjö umferðir með fjögur spil í umferð.

þriðjudagur, 27. mars 2012

Einmenningur hjá B.A.

Fyrra einmenninngskvöldið hjá B.A. lauk með sigri Péturs Guðjónssonar eftir skemmtilega keppni. Næsta þriðjudag verður aftur einmenningur. Þó að páskaeggin fari til þeirra með besta samanlagðan árangur eru samt allir velkomnir þá, þrátt fyrir að  þeir hafi misst af fyrra kvöldinu.

þriðjudagur, 27. mars 2012

Lögfræðistofa Íslands er enn í forystu þegar 1 kvöld er eftir af Aðalsveitakeppni BR

Aðalsveitakeppni BR 2012 Staðan eftir 10 umferðir af 12.

þriðjudagur, 28. febrúar 2012

Góutvímenningur B.A.

Eftir seinna kvöldið urðu það Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson sem unnu mótið en jafnt var á toppnum.

þriðjudagur, 28. febrúar 2012

Mót eldri borgara á Höfuðborgarsvæðinu 28. febrúar

Öll spil og úrslit

mánudagur, 27. febrúar 2012

Fyrirlestur í BR n.k. þriðjudag

Næsta þriðjudag 28. febrúar kl. 18:00 verður enn einn fyrirlesturinn.  Þá mun Jón Þorvarðarson halda fyrirlestur um líkindafræði í bridge og hvernig hægt er að sameina möguleika.